Íslandsmeistaramót í RL

Íslandsmeistaramót í Rocket League 2vs2

PC, Playstation 4
Organizator: TEK eSports
Online
Zasady
Reglur á Íslandsmeistaramóti TEK eSports í Rocket League.

Hér að neðan koma fram reglur á Íslandsmeistaramóti í Rocket League 28. apríl 2018. Með skráningu í mótið staðfestir þáttakandi að hann hafi lesið þær og samþykkt með öllu.

Mikilvægt er að allir fari eftir reglum mótsins til þess að tryggja góða framgöngu og jákvæða upplifun á mótinu. Keppendur verða að fylgja reglum sem og ákvörðunum stjórnenda mótsins sem eru á vegum TEK eSports og geta ákvarðanir þeirra verið frábrugðnar reglum mótsins ef talin er þörf á og meta stjórnendur það hverju sinni.

Þáttakendur heimila með skráningu í mótið TEK eSports, Tölvutek og Trust að nota nöfn eða gengil (avatar) þeirra auk mynd- og hljóðefni sem safnast af þeim á meðan móti stendur og er TEK eSports, Tölvutek og Trust heimilt að nota það efni á meðan og eftir að móti lýkur.

Athugið að best er að keppandi taki skjámynd eftir hvern leik, ef það skyldi koma upp vandamál milli liða um hvernig leikur endaði.


1. Leikmannaréttindi

Til þess að geta tekið þátt í íslandsmeistaramótinu þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:

1. Vera skráður sem Íslenskur ríkisborgari (eða fyrrverandi) eða hafa löggilta búsetu á Íslandi.
2. Eiga og nota virkan Rocket League notanda aðgang í góðu standi.

1.1 Spilarar og lið

Stjórnendur geta vísað frá eða krafist breytinga á notandanafni m.a. ef eftirfarandi á við:

1. Nöfn eru talin óeðlileg eða óviðeigandi.
2. Nöfn eru talin móðgandi eða niðrandi.
3. Nöfn sem eru talin svipa um of til nafns annars spilara eða liðs.

Spilarar verða að keppa undir sömu nöfnum og þeim sem voru notuð í skráningu.

Aðeins skráðir þátttakendur hafa leyfi að spila. Óheimilt er að nota óskráðan spilara eða annan aðgang en sinn eigin á mótinu.

Spilarar geta aðeins spilað með einum notanda aðgangi á mótinu.

1.2 Útgáfa leiks

Allir spilarar verða að setja upp nýjustu útgáfu af leiknum. Uppfærslur verða að vera uppsettar áður en mótið hefst, þannig að tafir verði í lágmarki.

1.3 Tæknileg vandamál

Spilarar bera ábyrgð á eigin vélbúnaði og internet tengingu. Leikir verða ekki endurspilaðir vegna tæknilegra mála að öllu jöfnu. Ef ólag er hjá spilara fyrir fyrstu mínutu er lokið eða mark hefur verið skorað innan við þann tíma getur leikur þurft að haldast þótt ólag sé enn til staðar.

1.4 Fjöldi liða

Pláss er fyrir 32 lið.

1.5 Frávísun spilara/liðs

Til að halda móti eins skilvirkt og mögulegt er getur stjórnandi þurft að dæma spilara eða lið úr keppni. Þetta verður aðeins gert í þeim tilvikum þar sem spilari eða lið með viljandi hætti stöðvar eða reynir að hafa óeðlileg áhrif á spilun leiks eða hefur áhrif á einhvern annan þátt mótsins.

Ef spilari eða lið verður uppvíst um einhversskonar svindl í leiknum er honum eða þeim vikið úr keppni.

Notkun galla, glitches eða villna í leiknum er stranglega bönnuð og ef spilari er uppvís að slíku verður frávísun framkvæmd ásamt því sem spilari fær ekki taka þátt í síðari mótum á vegum TEK eSports.

2. Skipulag leiks

2.1 Undirbúningur leiks

Ætlast er til að spilari leysi öll vandamál sem kunna að eiga sér stað áður en leikur hefst. Tengingar eða vélbúnaðarvandamál í miðjum leik geta leitt til þess að spilari verði fjarlægur úr mótinu.

2.2 Engin mæting

Ef lið er ekki mætt eða ekki leikfær á upphafstíma leiks getur það lið verið fjarlægt úr mótinu.

2.3 Aftenging frá leik

Ef spilari aftengist er heimilt að halda áfram að spila leik í óhæfi. Sá spilari sem aftengdist hefur möguleika að tengjast aftur leikjaþjóninum.

2.4 Endurræsing á leik

Ákveðið getur verið að endurræsa leik ef aftenging eða töf á tengingu kemur fram innan fyrstu mínútu leiks hjá liði/spilara eða áður en mark hefur verið skorað innan þess tíma.

2.5 Niðurstöður

Ef að leikur er ranglega tilkynntur af TEK eSports, þá hefur lið 10 mínutur til að hafa samband við TEK eSports og tilkynna það. Tilkynning af þessu verður að fylgja sönnun sem sýnir niðurstöðu leiks / leikja. Þátttakandi ber ábyrgð á því að veita sönnun á niðurstöðu leiks við deilur. Tilkynning fer fram með að smella á "Dispute match" eða gegnum Discord þjón TEK eSports: http://discord.gg/UXFHdpN

Ef þátttakandi neitar að samþykkja niðurstöðu leiks eða hefur skráð inn vitlausa niðurstöðu skal smellt á "Dispute match" og stjórnendur munu hafa samband við lið eins fljótlega og þeir geta. Þú verður að vera með skjámynd eða einhverskonar sönnun um niðurstöður leiksins, annars verður leikurinn spilaður upp á nýtt.

Ef mótherji þinn svarar ekki innan við 5 mínútum frá settum leiktíma (hægt að smella My Matches - Match Lobby og velja Chat) skal hafa samband við TEK stjórnendur á Discord þjóni og þeir munu reyna að hafa samband við mótherja, ef þeir svara ekki innan 5 mínútna getur þeim verið vikið úr keppni.

2.6 Leikjastillingar

Allir leikir verða spilaðir best af þremur fram að undanúrslitum, þá verða leikir spilaðir best af fimm.

Allir leikir eiga að vera spilaðir á Evrópskum leikjaþjóni.

Leikja snið: Soccar

Völlur: DFH Stadium (Það má spila á öðrum völlum ef báðir þátttakendur samþykkja)

Sjálfgefnar stillingar (Default)

2.7 Samskipti og hjálp

Hægt er að hafa samband við og fá hjálp hjá stjórnendum TEK eSports á Discord þjóni https://discord.gg/UXFHdpN

2.8 Twitch streymi

Leikir sem verða streymaðir verða valdir af stjórnendum mótsins. Ekki er unnt að verða við fyrirspurnum um að ákveðnir leikir séu streymaðir.

Keppendur verða að haga sér íþróttamannslega á meðan leikur er spilaður og/eða streymaður.

Áhorfendur eru ekki leyfðir í keppnisleik. (fyrir leiki sem verða streymaðir mega eingöngu stjórnendur og lýsendur vera áhorfendur)

Twitch rás TEK eSports: https://www.twitch.tv/tolvutekesports