Turf Rocket League Season 3

RLÍS - Turf Rocket League Season 3

PC, Playstation 4, Xbox One, Switch
Description
Þriðja tímabil RLÍS samanstendur af þrem deildum, úrvals, fyrstu og annarri deild. Sæti í úrvals og fyrstu deild ákvarðast af úrslitum fyrri tímabila, en önnur deild er opin fyrir hvern sem er.

Leiknar eru tvær umferðir í "Round Robin" formi í úrvals og fyrstu deild, þar sem allar viðureignir eru best-af-5.

Umferðir annarrar deildar fara eftir skráningu, en skráningu fyrir þá deild lokar þriðjudaginn 14. september kl 23:59.

Úrvalsdeildin hefur fengið nýtt nafn, og heitir nú Turf Deildin. Allar viðureignir Turf Deildarinnar verða sýndar á Twitch rás RocketLeagueIceland og Stöð2 Esport. Umferðir Turf Deildarinnar fara fram á sunnudögum og þriðjudögum.

Heil umferð í fyrstu deildinni verður sýnd á hverjum fimmtudegi á Twitch rás RocketLeagueIceland.

Allar viðureignir í annarri deildinni verða spilaðir á fimmtudögum, en ekki er áætlað að sýna frá þeim.

Upplýsingar um útsendingar og tímasetningar þeirra verður að finna á Discord þjóni RLÍS, https://discord.gg/tGBY9kn .
Timezone
Atlantic/Reykjavik (UTC+00:00)
Contact
Join Discord
Prize
Turf deild:

1. 125.000 kr
2. 75.000 kr
3. 40.000 kr
4. 10.000 kr