Íslandsmeistaramót í Rocket League
TEK eSports kynnir af stolti í samvinnu við Tölvutek og Trust Íslandsmeistaramót í Rocket League 2vs2
Keppt verður Online og skráning er ÓKEYPIS! 🙂
Uppfylltu allar nauðsynlegar upplýsingar um þig til þess að taka þátt.
Laugardaginn 28. apríl verður keppt í 2vs2 (tveir á móti tveimum). Allir leikir verða spilaðir Best af þremur fram að undanúrslitum, þá verða leikir spilaðir Best af fimm.
Innritun (Check-in) fyrir mótið hefst Kl. 16:00 laugardaginn 28. apríl og lýkur Kl. 17:00.
Þegar keppni hefst kl 18:00 verður sýnt beint frá leikjunum á Twitch rás TEK eSports:
http://www.twitch.tv/tolvutekesports
Tölvutek og Trust styrkja mótið með stórglæsilegum verðlaunum og verða þau veitt fyrir þá þátttakendur sem ná efstu 8 sætunum auk þess sem aukavinningar verða veittir fyrir þáttakendur og áhorfendur á Twitch!
Mikilvægt er að lesa reglurnar áður en skráning er gerð en með skráningu eru þær samþykktar, hægt er að lesa þær hér fyrir neðan undir "Rules".