Í Gull deild RLÍS verður keppt í 3v3. Deildin byrjar 18. október, og henni lýkur 11. nóvember. Deildinni verður skipt niður í riðla, þar sem allir keppa á móti öllum öðrum í sínum riðli. Fjöldi riðla fer eftir skráningu, en skráningu lýkur föstudaginn 14. október. Leyfilegt er að skrá einn varamann.
Það þarf að minnsta kosti að vera einn leikmaður í Gold ranki, restin má vera lægra rönkuð svo vinir geta spilað saman. Enginn má vera hærra rankaður en Gold.
Keppniskvöld verða á þriðjudögum kl 19:00 og 20:00, en leyfilegt er að færa leikina innan keppnisviku ef bæði lið samþykkja. Allar viðureignir verða Best of 5 sem þýðir að fyrstur til að sigra þrjá leiki vinnur viðureignina. Stefnt er að því að vera með tvær viðureignir á þriðjudagskvöldum.
ATH. Þátttakendur undir 13 ára aldri þurfa að vera með leyfisbréf frá foreldrum og forráðamönnum:
https://tinyurl.com/rlisleyfisbrefs4
Öll samskipti mótastjórnar til liða fara fram á discord þjóni RLÍS
https://discord.gg/tGBY9kn . Þar er hægt að hafa samband við Stjórnarmeðlimi RLÍS séu einhverjar spurningar.