Fjórða tímabil RLÍS samanstendur af þrem deildum, úrvals, fyrstu og annarri deild. Sæti í úrvals og fyrstu deild ákvarðast af úrslitum fyrri tímabila, en önnur deild er opin fyrir hvern sem er.
Uppsetningu á öllum deildum er að finna í regluskjali.
Uppsetning annarrar deildar fer eftir skráningu, en skráningu fyrir þá deild lýkur mánudaginn 7. mars kl 23:59.
Allar viðureignir Úrvalsdeildarinnar verða sýndar á Twitch rás RocketLeagueIceland og Stöð2 Esport. Umferðir Úrvalsdeildarinnar fara fram á Xdögum og Xdögum.
Fyrsta deild hefst 1. mars og verða viðureignir spilaðar á þriðjudögum, en ekki er áætlað að sýna frá þeim.
Önnur deild deild hefst 10. mars og verða viðureignir spilaðar á fimmtudögum, en ekki er áætlað að sýna frá þeim.
ATH. Þátttakendur undir 13 ára aldri þurfa að vera með leyfisbréf frá foreldrum og forráðamönnum:
https://tinyurl.com/rlisleyfisbrefs4
Upplýsingar um útsendingar og tímasetningar þeirra verður að finna á Discord þjóni RLÍS,
https://discord.gg/tGBY9kn .