Íslandsmeistaramót í PlayerUnknown's Battlegrounds
TEK eSports kynnir af stolti í samvinnu við Tölvutek og ZOWIE by BenQ fyrsta Squad mót á Íslandi í PlayerUnknown's Battlegrounds.
Helgina 19-20. Maí verður keppt í Squad FPP (4 saman í liði) og geta allt að 256 spilarar tekið þátt eða 64 lið. (keppnin er online)
Keppni hefst kl 12:00 þann 19. maí og úrslit hefjast kl 18:00 þann 20. maí. Það verður sýnt eins og áður beint frá leikjunum á Twitch rás TEK eSports:
http://www.twitch.tv/tolvutekesports
Athugið að uppfærður skráningarfrestur er til þriðjudagsins 15. maí!
Tölvutek og ZOWIE by BenQ styrkja mótið með stórglæsilegum verðlaunum og verða þau veitt fyrir þau lið sem ná efstu 3 sætunum auk þess sem aukavinningar verða veittir fyrir þáttakendur og áhorfendur á Twitch!
Mikilvægt er að lesa reglurnar áður en skráning er gerð en með skráningu eru þær samþykktar, hægt er að lesa þær hér fyrir neðan undir "Rules".